25) Fljúgum hærra - Ann og Nancy Wilson (Heart)

Hljómsveitina Heart þekkja eflaust allir sem á annað borð hafa hlustað á tónlist síðustu 45 árin eða svo og þó margir tengi hana við spandex, hárlakk og dramatískar powerballöður þá er það tímabil bara örlítið brot af þeirra langa ferli.Systurnar Ann og Nancy Wilson hafa verið stoð og stytta Heart nánast frá upphafi og margt hefur gengið á í þeirra lífi síðan þær byrjuðu að syngja saman Bítlalög til að skemmta foreldrum sínum og gestum þeirra þegar þær voru enn barnungar.

Om Podcasten

Gömlu vinkonurnar Lolla og Linda setjast niður og fræða hvor aðra um merkilegar konur. Lolla sem er djúpvitur tónlistargúrú segir frá framúrskarandi konum úr tónlistarheiminum. Safnakerlan Linda dregur hins vegar fram sögur af spennandi konum í ljósmyndun. Hlaðavarpið þeytir hlustandanum inn í heim kvenna sem vilja fljúga hærra… samt ekki á galdrakústi.- - - - - - - - - - - Hér er svo Facebook síðan okkar þar sem hægt er að finna playlista, myndir og ýmislegt annað tengt podcastin. https://www.facebook.com/fljugumhaerrapodcast