27) Fljúgum hærra - Róisín Murphy (Moloko)

Róisín Murphy hóf tónlistarferilinn eiginlega alveg óvart þegar hún hitti strák í partýi sem hana langaði til að kynnast betur, vatt sér upp að honum og notaði svo súra pick up línu að hann gat ekki annað en boðið henni á deit og saman urðu þau svo dúettinn Moloko.Þegar þau svo nenntu ekki lengur að vera kærustupar einhverjum árum seinna ákveður hún að demba sér í sólóferil og þar koma við sögu speglaflísar, risahumar, rándýrt plötucover, trúðabúningar og ítölsk tökulög svo eitthvað sé nefnt af skrýtnum og skemmtilegum hlutum sem hún hefur fengist við um ævina.

Om Podcasten

Gömlu vinkonurnar Lolla og Linda setjast niður og fræða hvor aðra um merkilegar konur. Lolla sem er djúpvitur tónlistargúrú segir frá framúrskarandi konum úr tónlistarheiminum. Safnakerlan Linda dregur hins vegar fram sögur af spennandi konum í ljósmyndun. Hlaðavarpið þeytir hlustandanum inn í heim kvenna sem vilja fljúga hærra… samt ekki á galdrakústi.- - - - - - - - - - - Hér er svo Facebook síðan okkar þar sem hægt er að finna playlista, myndir og ýmislegt annað tengt podcastin. https://www.facebook.com/fljugumhaerrapodcast