45) Fljúgum hærra - Dusty Springfield

Dusty Springfield fór frá því að vera eina af stærstu poppstjörnum 7. áratugarins í það að vera öllum gleymd, grafin og umkomulaus í Bandaríkjunum þar sem engin eftirspurn var eftir henni. Gefandi út plötur sem enginn nennti að hlusta á. Þar til að tveir ungir tónlistarmenn sem sem voru miklir aðdáendur hennar draga hana aftur fram í dagsljósið og dusta af henni rykið.

Om Podcasten

Gömlu vinkonurnar Lolla og Linda setjast niður og fræða hvor aðra um tónlist og merkilegar konur. Lolla sem er djúpvitur tónlistargúrú segir frá framúrskarandi konum úr tónlistarheiminum og í seríu 3 segir hún frá hinum ýmsu tónlistarstefnum og merkum atburðum í tónlistarsögunni. Safnakerlan Linda dregur hins vegar fram sögur af spennandi konum í ljósmyndun. Þið finnið okkur líka á Facebook og getið hlustað á þættina okkar á Spotify, Apple Podcast og fjölmörgum öðrum hlaðvarpsveitum