5) Laurel Canyon - Þar sem tónlistin hljómaði úr hverju húsi og tónlistarsagan var skrifuð
Frá 1965 til 1979 var Laurel Canyon staðurinn þar sem að ungar og upprennandi tónlistarstjörnur bjuggu. Þar var nóg af lausu húsnæði á góðu verði og eftir að Chris Hillman og Roger McGuinn, sem þá höfðu nýlega stofnað The Byrds, settust þar að fylgdi fjöldi annara tónlistarmanna á eftir. Þú gast átt von á því að sjá Jim Morrison hjóla eftir götunum og hitt Framk Zappa og Alice Cooper í hverfisbúðinni. Allir voru að semja og spila tónlist. En ýmislegt átti eftir að hrista upp í samfélaginu þar...