60) Fljúgum hærra - Alanis Morissette

Alanis Morissette fór frá því að vera gleymd unglingastjarna frá Kanada í það að verða frægasta, reiða kona heimsins. Hún talaði beint til milljóna ungra kvenna á plötunni sinni Jagged little pill sem fundu sjálfar sig í textunum hennar og hún varð súperstjarna aðeins 21 árs gömul.

Om Podcasten

Gömlu vinkonurnar Lolla og Linda setjast niður og fræða hvor aðra um tónlist og merkilegar konur. Lolla sem er djúpvitur tónlistargúrú segir frá framúrskarandi konum úr tónlistarheiminum og í seríu 3 segir hún frá hinum ýmsu tónlistarstefnum og merkum atburðum í tónlistarsögunni. Safnakerlan Linda dregur hins vegar fram sögur af spennandi konum í ljósmyndun. Þið finnið okkur líka á Facebook og getið hlustað á þættina okkar á Spotify, Apple Podcast og fjölmörgum öðrum hlaðvarpsveitum