Addi Tryggva bauð upp á Fimmu dagsins sem snerist um þakklæti.
Í Fram og til baka þennan morguninn fengum við góðan gest, nefnilega sómadrenginn Aðalbjörn Tryggvason sem er útvarpsmaðurinn á rokkstöðinni X-inu og fer fyrir rokksveitinni Sólstöfum. Hljómsveitin Sólstafir hefur verið starfandi á þriðja áratug og á sér risastóran áhangendahóp um allan heim. Aðalbjörn, eða Addi, deildi með hlustendum fimm hlutum sem eru honum afar kærir. Hlutirnir tengdust æsku hans, rokklífinu og nýju lífi sem faðir, lífi í fullum fókus án aukaefna og nýjum vettvangi í framleiðslu íslensk náttúruilmvatns fyrir öll kyn. Í seinni hluta þáttar var boðið upp á áhættuatriði þegar þáttastjórnandi lagði af stað úr Efstaleiti í hringferð um tónlistarlandið Ísland - á 33 snúningum. Tónlist alls staðar að af landinu, frá Akranesi, Stykkishólmi, Vestfjörðum, Eyjafirði og Húsavík. Hraðferð yfir Austfirðina, Suðurlandsundirlendið, Reykjanes og endað í Breiðholtinu. Allt var þetta gert á löglegum hraða. Hér er lagalistinn: Frá kl. 08-09: Elton John - Daniel. Sólstafir - Ísafold. Hljómar - Ástarsæla. Hringferðin frá kl. 09-10: Dúmbó og Steini - Frækorn og flugur. Vinir vors og blóma - Frjáls. Jón Kr. og Gísli Ægir - Ég er frjáls. Geirmundur Valtýsson - Nú er ég léttur. Árný Margrét - Verum í sambandi. Stuðkompaníið - Þegar allt er orðið hljótt. Ljótu hálfvitarnir - Förum hringinn. Bloodgroup - Hips Again. Drangar - Bál. Júníus Meyvant - Gold laces. Kristjana Stefánsdóttir og Sólskuggarnir - Reykjavíkurblús. Fríða Dís - Myndaalbúm. Hljómsveitin Ég - Tíu fingur og tær.