Andri Snær Magnason og ljóðin

Fimma dagsins snerist um ljóð enda viðmælandinn enginn annar en Andri Snær Magnason. Tilefnið er 25 ára afmælisútgáfa á Sögunni um bláa hnöttinn. Andri Snær sagði af fimm ljóðum sem höfðu djúp áhrif á hann og þar kenndi margra grasa. Ljóðin eru eftir Stein Steinarr, Þórð Helgason, Maríu Bjarnadóttur, Þorvald Þorsteinsson og Ísak Harðarson. Þemað í tónlistinni var veislan og tók lagalistinn mið af því en hann var svona: Ríó Tríó - Veislan á Hóli Emilíana Torrini - Let’s keep dancing Megas - Manni endist varla ævin Radiohead - Everthing in its right place Baggalútur - Allir eru að fara í kántrí Viking Giant Show - Party at the White House Prince - 1999 Sabrina Carpenter - Please Please Please U2 - Party Girl Dua Lipa - Houdini Eminem - Houdini Steve Miller Band - Abracadabra Salsakommúnan og Bogomil Font - Í minni skel Mezzoforte - Garden Party Bryan Ferry - It’s my party Rebekka Blöndal og Moses Hightower - Hvað þú vilt Milljónamæringarnir, Stefán Hilmarsson, Anna Mjöll - Svimi svimi svitabað

Om Podcasten

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.