Birkir Már bauð upp á fimm fótboltaminningar
Aðalgestur Fram og til baka þennan morguninn var knattspyrnumaðurinn Birkir Már Sævarsson. Birkir spilar nú sitt síðasta tímabil með Val í Reykjavík og verður fertugur á árinu. Birkir vann sinn fyrsta titil með Val árið 2007, lék með landsliðinu til ársins 2021 þegar hann ákvað að hleypa sér yngri mönnum að sinni stöðu en hann er bakvörður. Í tilefni þess að Evrópumót karla í knattspyrnu hefst í komandi viku í Þýskalandi þá bauð Birkir upp á boltafimmu þar sem hann rifjaði upp fimm eftirminnilega leiki sem hann hefur tekið þátt í, inn á vellinum aðallega en þó aðeins sem áhorfandi í einum þeirra. Þar heyrðum við góðar sögur frá Hlíðarenda, Hammarby í Svíþjóð, HM í Frakklandi 1998, HM í Rússlandi 2018 og EM í Frakklandi árið 2016 þegar Íslendingar unnu m.a. frækinn sigur á Englendingum. Og sökum þess að þátturinn hófst með boltalátum þá hélt þáttastjórnandi boltanum gangandi með fótboltalögum. Hér er lagalisti þáttarins: Frá 08-09: Lón - Hours. Daði Freyr - Whole Again Kiriyama Family - Disaster Frá 09-10: Gerry & The Pacemakers - You'll Never Walk Alone. Bogomil Font og bakverðirnir - Skagamenn skora mörkin DODO GAD - Re-sepp-ten (Vi er rode Vi er hvide) The Lightning Seeds, David Baddiel, Frank Skinner - 3 Lions Friðrik Dór - Samvinnersamasemvinna The White Stripes - Seven Nation Army Bubbi Morthens - Við erum KR Dario G. - Carnaval Shakira - Waka Waka MGMT - Time To Pretend GALA - Freed from desire