#009 - Veganistur

Hver elskar ekki góðan sælkeramat án dýraafurða? Veganistur þarf varla að kynna. Systurnar Helga María og Júlía Sif eru snillingarnir á bak við matarbloggið veganistur.is og gáfu nýlega út matreiðslubókina Úr eldhúsinu okkar sem inniheldur yfir 100 gómsætar vegan uppskriftir. Í þættinum förum við yfir hvernig allt þetta byrjaði og hvað gefur þeim hugmyndir og innblástur þegar kemur að vegan matargerð.

Þátturinn var tekinn upp í Janúar 2020.

Intro/Outro stef: Baldur Kristjans aka Robert Bubbi

Om Podcasten

Góð ráð dýr er hlaðvarp um veganisma á Íslandi. Umsjónarmenn eru Birkir Steinn og Ragnar Freyr en þeir hafa báðir verið vegan í nokkur ár og tekið virkan þátt í framgangi grænkera á Íslandi. Þættirnir eru í samræðuformi þar sem farið er um víðan völl út frá einu þema hverju sinni. Góðir gestir verða einnig fengnir til þess að deila sérfræðikunnáttu sinni, skoðunum og reynslu.