Vegan jól

Hátíðarnar nálgast og Jólakerið er hér til að aðstoða ykkur með jólamatinn! Við höfum verið á fullu að taka upp matreiðslumyndbönd af gómsætum hátíðamat. Uppskriftir eins og grafinn gulrótarlox, fylltur krúttlingur, súkkulaði smjördeigs jólatré hafa verið birtar á facebook grúbbu Grænkersins, hlustendavaktin - á Instagram og TikTok. Við höldum áfram að birta vegan uppskriftir alveg fram að jólum og þar má t.d. nefna ris a la mande, súkkulaðimús, churros, og heitt súkkulaði. Í þættinum ...

Om Podcasten

Velkomin  í Grænkerið, hlaðvarpið sem fjallar um alla króka og kima veganisma og snertir á þeim málefnum sem grænkerar upplifa dags daglega. Talað er á mannamáli út frá raunverulegum aðstæðum og reynt að setja fram lausnir við hversdagslegum vandamálum á jákvæðan hátt. Eva Kristjánsdóttir stýrir hlaðvarpinu en hún hefur verið vegan í 9 ár. Hún stofnaði Grænkerið með það að markmiði að skapa vettvang sem styður við grænkera á sinni vegan vegferð og minnir þau á að þau séu ekki eina vegan fólkið á landinu.