Vegan sambönd - Gætiru deitað aðila sem er ekki vegan?

Gætir þú verið í sambandi með aðila sem er ekki vegan? Þessari spurningu (og mörgum fleiri) reyndi ég ásamt Birtu Ísey og Axel Friðriks að svara í þættinum. Við fókusum á ástarsambönd en komum þó einnig inná dínamík í samböndum milli vina og á milli foreldra og barna. Við fórum yfir hvernig staðan er innan okkar sambanda og í lokin skoðum við einnig hvað hlustendur svöruðu þegar ég spurði ykkur nokkurra sambandsspurninga. Þessi þáttur er í boði Ethique. Ethuiqe...

Om Podcasten

Velkomin  í Grænkerið, hlaðvarpið sem fjallar um alla króka og kima veganisma og snertir á þeim málefnum sem grænkerar upplifa dags daglega. Talað er á mannamáli út frá raunverulegum aðstæðum og reynt að setja fram lausnir við hversdagslegum vandamálum á jákvæðan hátt. Eva Kristjánsdóttir stýrir hlaðvarpinu en hún hefur verið vegan í 9 ár. Hún stofnaði Grænkerið með það að markmiði að skapa vettvang sem styður við grænkera á sinni vegan vegferð og minnir þau á að þau séu ekki eina vegan fólkið á landinu.