#15 Siggi Braga

Hreinræktaður Eyjamaður í húð og hár! Hann blæðir fyrir bandalagið og vill hvergi annarstaðar vera en á Eyjunni fögru. Hann spilaði allan sinn feril með ÍBV fyrir utan eitt tímabil og steig ölduna með félaginu sínu í miklum brotsjó þegar stóð jafnvel til að leggja handboltadeildina niður. Hann er einn af þeim sem byggði starfið aftur upp, gaf líf og sál í klúbbinn og byggði grunn að handbolta stórveldinu sem nú ríkir í Eyjum! Frábær leikmaður með stórkostlega yfirsýn yfir völlinn þrátt fyrir að vera aðeins með eitt auga. Hinn eini sanni gleðigjafi... Sigurður Bragason... Siggi Braga Í BOÐI NETGÍRÓ og RAG umboðsins á Íslandi rag.is

Om Podcasten

Tryggvi Rafns hittir gamlar kempur sem fara létt yfir ferilinn, velja uppáhalds liðsfélagana og rifja upp skemmtilegar sögur.