Geggjaður sigur á Frökkum - Undanúrslit raunhæfur möguleiki

Strákarnir í  hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í dag í Klaka stúdíóið sitt og tóku upp sinn þrítugasta og fyrsta þátt.. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Gestur Guðrúnarson, Jói Lange og Arnar Gunnarsson. Í þætti dagsins fóru þeir yfir stórbrotna framistöðu íslenska liðsins gegn Frökkum í gærkvöldi þar sem að strákarnir okkar unnu sannfærandi 29-21. Þeir félagar voru sammála því að þetta var ein besta frammistaða í sögu íslenska karlalandsliðsins og gátu þeir ekki hætt að hrósa framlagi leikmanna í þessum leik.  Leikmenn höfðu sýnt það að breiddin væri svo sannarlega til staðar hjá liðinu og væri fróðlegt að fygjast með liðinu í framhaldinu. Strákarnir í þættinum leyfðu sér aðeins að fabúlera um framhaldið og þeir eru sannfærðir um það að íslenska liðið væri að fara spila í undanúrslitum á föstudaginn og gengu þeir svo langt að hvetja úrval útsýn til þess að fara skipuleggja ferð út til Búdapest um næstu helgi

Om Podcasten

Þáttur þar sem er fjallað um handbolta frá öllum hliðum bæði hérlendis og erlendis