10 – Tónlistartrúnó II: Skíturinn

Við ætlum að ræða ítarlega um drullusokkana í Mötley Crue, greina þá, meta og loks dæma. Sem fyrr munu umsjónarmenn beina athyglinni að sjálfum sér og skoða eigin reynslu og lífssögu í ljósi glamrokks níunda áratugarins. Heróín kemur við sögu.   Umsjón: Sigurður Ólafsson, Orri Smárason og Jón Knútur Ásmundsson. 

Om Podcasten

Heimsendi er hlaðvarpsþáttur hjónanna Jóns Knúts Ásmundssonar og Estherar Aspar Gunnarsdóttur. Þau hafa áhuga á flestu nema því að þrífa bílinn sinn og reikna má með fjölbreyttum efnistökum. Austfirskt samfélag, austfirskar konur og menn verða í brennidepli en ekki reikna með aflatölum eða stöðu austfirskra knattspyrnufélaga í deildinni – slíkar upplýsingar finnur þú annars staðar. Hér verða fínni þræðir raktir upp og sérvisku þáttastjórnenda gefinn laus taumurinn.