Sumar-Heimskviður / Taylor Swift og Caitlin Clark

Sumarheimskviður halda áfram, í dag ætlum við að rifja upp umfjöllun um tvær konur sem hafa mikið verið í fréttum á þessu ári. En á ólíkum sviðum þó, þetta eru Taylor Swift og Caitlin Clark. Sérfræðingarnir í líkja Taylor Swift við Lionel Messi eða við rúllandi snjóbolta sem sífellt hleður utan á sig. Segja hana venjulega stelpu sem mörg geti samsvarað sér við, stelpu sem átti alltaf þennan draum að verða kántrístjarna en er nú skærasta stjarnan af þeim öllum. Tónleikaferðalagið sem hún er nú á hafði merkjanleg áhrif á hagkerfi Bandaríkjanna, hvorki meira né minna. Önnur kona sem hefur verið mikið til umfjöllunar og þá sérstaklega í Bandaríkjunum er körfuboltakempan Caitlin Clark. Hún hefur veirð á vörum allra sem fylgjast með körfubolta og hún er ekki einu sinni byrjuð í atvinnumennsku. Það var Þorgils Jónsson sem sagði okkur frá Clark í apríl síðastliðnum.

Om Podcasten

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.