8. þáttur - Bragðbættir ostar og jólin
Við fengum að heyra 8. og síðasta þáttinn í smáþáttaröðinni Heimur ostanna, þar sem ostaáhugamaðurinn Svavar Halldórsson hefur í fylgd ostasérfræðingsins Eynýjar Sigurðardóttur, leitt hlustendur um ævintýraheima ostanna. Í þessum síðasta þætti fóru þau Svavar og Eirný yfir bragðbætta osta af öllu tagi. Hvað má og hvað má ekki? Þau hugsuðu líka til jólanna í þessum síðasta þætti í bili. Alla þættina átta af Heimi ostanna má nálgast í hlaðvarpsútgáfu á vef RÚV og helstu hlaðvarpsveitum.