Hinir íslensku náttúrufræðingar - Kristinn Haukur Skarphéðinsson, fuglafræðingur

Kristinn Haukur Skaphéðinsson er manna fróðastur um erni á Íslandi en hann á langan starfsferil  að baki hjá Náttúrufræðistofnun Íslands við rannsóknir á þeim og öðrum fuglum í náttúru Íslands. Í hlaðvarpinu segir Kristinn Haukur okkur frá námi sínu og störfum - og  skemmtilegum fuglum sem hann hefur komist í kynni við.

Om Podcasten

Í hlaðvarpinu Hinir íslensku náttúrufræðingar hittum við íslenska náttúrufræðinga, kynnumst rannsóknum þeirra og störfum heima og erlendis, ástríðu þeirra fyrir náttúru og ævintýrum sem þeir hafa ratað í. Hafdís Hanna Ægisdóttir, plöntuvistfræðingur, og Helena Westhöfer Óladóttir, umhverfisfræðingur, halda úti hlaðvarpinu fyrir hönd Hins íslenska náttúrufræðifélags en eitt helsta markmið félagsins er að glæða áhuga og auka þekkingu á öllu sem viðkemur náttúru.