#36 Allt sem þú þarft að vita um Baldvin Þór Magnússon

Hver er Baldvin Þór Magnússon? Jú, ekki nema þrefaldur Íslandsmethafi og einn allra besti hlaupari okkar Íslendinga. Við í Hlaupalíf tókum strangheiðarlegt viðtal við þennan unga og efnilega hlaupara sem hefur vakið talsverða athygli í hlaupaheiminum. Baldvin er hægt og rólega byrjaður að slá nokkur Íslandsmet í hlaupum og er jafnframt að gera stórgóða hluti með háskólaliðinu sínu í Bandaríkjunum, sem er sami skóli og Hlynur Andrésson var í. Skemmtilegt. Ef þú vilt kynnast einum besta hlaupara okkar Íslendinga þá máttu ekki missa af þessu viðtali, takk.  Þátturinn er í boði Sportval og Serrano.

Om Podcasten

Verið hjartanlega velkomin í hlaðvarpsþáttinn “Hlaupalíf”. Við erum Elín Edda og Vilhjálmur Þór og við höfum ástríðu fyrir hlaupum. Hér verður fjallað um allt á milli himins og jarðar um hvað eina sem tengist hlaupum; æfingar, markmið, næring, keppnishlaup og almenningshlaup og auðvitað undirbúningur fyrir hlaup . Einnig verður fjallað almennt um líkamsrækt, æfingamagnið, þjálfun með púlsmæli, hlaupastíllinn(mikilvægt!), mataræði, meiðsli og fyrirbyggjandi aðgerðir og MARGT FLEIRA! Tune in!