1000 speglar - Hlaðvarp um Nabokov | 2. þáttur : Mæja

Vladimir Navokov er eitt þekktasta skáld 20. aldar, en eftir þennan skapandi heimshornaflakkara liggur fjöldi skáldverka, leikrita, ljóða, smásagnasafna, fræðibóka og, merkilegt nokk, skákdæma.  Í þessari seríu fjallar Hjalti Snær um ævi og störf þessa merka manns, og þær mörgu spegilmyndir sem verk hans kalla fram í mannskepnunni, frá Morgni Konungi til Lolitu...  Tónlist: Titill lags: Spanakopita Höfundur/flytjandi: Steve Rice Af pound5.com   Pólónesa úr Évgení Ónegin höf. Tchaikovsky Af pound5.com Das Nachtgespenst (upptaka frá 1929) höf. Kurt Gerron

Om Podcasten

Rabbrýmið er opið hlaðvarpsstúdíó Bókasafns Hafnarfjarðar þar sem bækur og blaður hittast yfir hangandi hljóðnemum og allir eru til í spjall. Rýmið er opið öllum þeim sem eru með gilt bókasafnskort og er hægt að panta upptökutíma á bit.ly/rabbrymid Í Rabbrýminu er allur búnaður sem þarf til upptöku og vinnslu hlaðvarps til staðar. Fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref er starfsfólk til staðar til að fara yfir formsatriðin og aðstoða fyrst um sinn. Skúffuskáld, skoðanapésar, grúskarar, bókabéusar og allir þeir sem hafa ótakmarkaða þörf til að koma sér út í kosmósið - þið eruð hjartanlega velkomin í Rabbrýmið. Fyrir upplýsingar um aðstöðuna og aðrar spurningar ekki hika við að senda tölvupóst á hladvarp@hafnarfjordur.is