Ræmurýmið - Office Space

Ræmurýmið er kvikmynda- og ræmuunnendaklúbbur Bókasafns Hafnarfjarðar, og er í umsjón Gunnhildar Ægisdóttur, kvikmyndafræðings. Mánaðarlega kemur út stuttur hlaðvarpspistill um kvikmynd mánaðarins, og myndin svo sýnd á bókasafninu viku síðar. Office Space er óður til hinna vinnandi barna áttunda áratugarins og kolsvört kómedía um dáleiðslu, fyrirtækjakúltúr, ömurlega yfirmenn, síbilandi prentara, sérfræðiþekkingarlausa „sérfræðinga“ og mikilvægi rauðra heftara. Peter, Samir og Michael vinna á andlega dauðri skrifstofu hugbúnaðarfyrirtækis, klæðast hvítum skyrtum og þjást. Peter, að ráði unnustu sinnar, heimsækir dávald í tilraun til að ná taki á kvíða og lífsleiða, en það er upphaf atburðarásar sem endar með ósköpum, sér í lagi fyrir prentara.   Meðal leikara eru Ron Livingston, Jennifer Aniston, Stephen Root og Gary Cole. Leikstóri og höfundur er Mike Judge.

Om Podcasten

Rabbrýmið er opið hlaðvarpsstúdíó Bókasafns Hafnarfjarðar þar sem bækur og blaður hittast yfir hangandi hljóðnemum og allir eru til í spjall. Rýmið er opið öllum þeim sem eru með gilt bókasafnskort og er hægt að panta upptökutíma á bit.ly/rabbrymid Í Rabbrýminu er allur búnaður sem þarf til upptöku og vinnslu hlaðvarps til staðar. Fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref er starfsfólk til staðar til að fara yfir formsatriðin og aðstoða fyrst um sinn. Skúffuskáld, skoðanapésar, grúskarar, bókabéusar og allir þeir sem hafa ótakmarkaða þörf til að koma sér út í kosmósið - þið eruð hjartanlega velkomin í Rabbrýmið. Fyrir upplýsingar um aðstöðuna og aðrar spurningar ekki hika við að senda tölvupóst á hladvarp@hafnarfjordur.is