Slökun - Öruggi griðarstaðurinn
Að skapa sér stað í huganum sem gefur tilfinningu um öryggi og ró getur verið gott bjargráð til að nota í ýmsum aðstæðum. Til dæmis þegar þú upplifir kvíða, óvissu eða vilt auka vellíðan. Það er gott að gera þessa hugleiðslu eins oft og þarf til að móta staðinn þinn vel svo að það sé auðvelt að hverfa á hann hvenær sem þú þarft á að halda. Lóa Björk Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu leiðir slökunina. Krabbameinsfélagið býður upp á ráðgjöf og stuðning við þá sem hafa gre...