#22 - Heimilisbókhald og bankar í ólgusjó fjártækni - Jón Heiðar Þorsteinson

Jón Heiðar Þorsteinson er yfirmaður markaðsmála fyrir vöruframboð Meniga (e. product marketing manager) ásamt því að vera vörustjóri yfir nýrri vöru frá Meniga sem kemur fljótlega á markað. Í gegnum árin hefur Jón Heiðar snert á allskonar tækni sem var á þeim tíma algjör nýjung á markaði. Hann hefur starfað meðal annars hjá almannatengslafyrirtækjum, í rafrænni þjónustu hjá banka og markaðsstjóri leikjafyrirtækis og ferðaþjónustufyrirtækis.   Í þessu samtali ræddum við um heimilisbókhald og mikilvægi þess að hafa skýra yfirsýn yfir bæði útgjöld og innkomu, nýjar lausnir á fjártæknimarkaðnum, auðgun færslna, sóknarfæri Meniga og að lokum stöðu bankanna í gjörbreyttu neytendalandslagi.

Om Podcasten

Hlaðvarp Rafmyntaráðs fjallar um fjármálakerfið og tækni, ásamt hugvekju um ýmis mál.