#6 - Rafmyntir, undirstöður peninga og þjóðargjaldmiðlar á bálkakeðjum - Sveinn Valfells

Sveinn Valfells er framkvæmdastjóri og einn af stofnendum rafeyrisfyrirtækisins Monerium. Hann sendi sína fyrstu Bitcoin færslu árið 2011 og hefur síðan þá farið i fjölmörg viðtöl og haldið fyrirlestra um Bitcoin og bálkakeðjur. Utan við heim bálkakeðja hefur Sveinn verið ráðgjafi, unnið fyrir og stofnað fyrirtæki á sviði líftækni, lífupplýsingafræði, fjármálaþjónustu, símafyrirtækja, hugbúnaðar fyrir snjallsíma og í framtaksfjárfestingum. Sveinn lauk B.S. gráðu í nytjaeðlisfræði frá Columbia, M.S. í efnahagskerfum (e. economic systems) frá Stanford og einnig Ph.D. í eðlisfræði frá háskólanum í Boston. Í þessu samtali ræddum við um dreifðar fjármálalausnir (e. DeFi) sem hafa verið að ryðja sér til rúms, raunverulegar breytingar sem eru að eiga sér stað í fjármálakerfinu, útgáfu lögeyris á bálkakeðjum í formi rafeyris og hvernig sú útgáfa er gjörólíkt Libra. Samtalið var mjög fræðandi og er eitthvað sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.

Om Podcasten

Hlaðvarp Rafmyntaráðs fjallar um fjármálakerfið og tækni, ásamt hugvekju um ýmis mál.