#8 - Titringur á heimsmörkuðum, viðskiptastríð og neikvæðir raunvextir - Agnar Tómas Möller

Agnar Tómas Möller er forstöðumaður skuldabréfa og markaða hjá Júpíter. Hann er einnig annar stofnenda Gamma og starfaði þar sem sjóðstjóri og framkvæmdastjóri sjóða frá árinu 2009. Hann hefur starfað á íslenskum fjármálamarkaði frá árinu 2001 er hann starfaði í greiningardeild Búnaðarbanka Íslands. Á árunum 2004–2006 starfaði hann í áhættustýringu Kaupþings og frá árinu 2006 til byrjun árs 2008 í skuldabréfamiðlun Kaupþings. Agnar er með M.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Í þessu samtali ræddum við um viðskiptastríð Bandaríkjanna og Kína, stöðuna í Evrópska hagkerfinu, áhrifin sem neikvæðir vextir hafa á heiminn, þrönga stöðu fjárfestingadeilda lífeyrissjóða, skipun nýs seðlabankastjóra á Íslandi og íslenska fasteignamarkaðinn. En að tilkynningum. Næstkomandi fimmtudag, þann 29 ágúst mun við í Rafmyntaráði halda sumarfögnuð í Iðnó og eru allir velkomnir. Fögnuðurinn hefst kl 17:00 og boðið verður upp á mat og drykk og fjörugar samræður. Mig langar einnig að hvetja þig til að senda okkur ábendingu um viðmælendur eða umræðuefni á netfangið ibf@ibf.is. En nóg um það, vindum okkur í samtalið.

Om Podcasten

Hlaðvarp Rafmyntaráðs fjallar um fjármálakerfið og tækni, ásamt hugvekju um ýmis mál.