Covid-19, spálíkön, íslenska bjartsýnin og auðmýkt fyrir óvissunni - Georg Lúðvíksson

Georg Lúðvíksson er forstjóri og meðstofnandi Meniga sem við ættum nú öll að þekkja eftir fyrri þátt. Meniga varð til upp úr síðustu fjármálakrísu, en þau þróa í dag sjálfvirkt heimilisbókhald sem eitt stærsta tæknifyrirtæki landsins. Georg er mikill hugsuður og kemur oft með sterkt innlegg inn í almenna umræðu og því var mikill fengur að fá hann í þáttinn. Í þættinum ræddum við um mikilvægi þess að hafa auðmýkt fyrir óvissunni, spálíkanagerð, tækifæri leiðtoga til að segja satt og rétt frá og nauðsyn þess að horfa fram á vegin en þó í gegnum gleraugu raunsæisins.

Om Podcasten

Hlaðvarp Rafmyntaráðs fjallar um fjármálakerfið og tækni, ásamt hugvekju um ýmis mál.