Wolfgang Amadeus Mozart

Þetta er sagan af Wolfgang Amadeus Mozart, stráknum sem skrifaði nafn sitt rækilega á spjöld sögunnar þegar hann var krakki, sem eitt merkilegasta undrabarn tónlistarsögunnar og síðar meir sem fullorðið tónskáld. Það eru mjög góðar líkur á því að þú þekkir fleiri en eitt verk eftir Mozart, hafir jafnvel spilað eða sungið tónlist eftir hann eða sofnað við vögguvísu eftir hann þegar þú varst lítið barn. En vissir þú að Mozart var átta ára þegar hann samdi sína fyrstu sinfóníu? Í ljósi krakkasögunnar eru þættir sem fjalla um krakka sem hafa skráð nöfn sín á spjöld sögunnar. Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir

Om Podcasten

„Hlustaðu nú!" er þáttaröð fyrir krakka og fjölskyldur til að hlusta á saman, í sitthvoru lagi, í bílnum, uppi í rúmi, inni í tjaldi, á ferð og flugi eða bara heima í rólegheitum. Þema þáttanna verður margbreytilegt, eins og heimurinn sem við búum í. Sannar og skáldaðar sögur, tónlist, íþróttir og leikir, dularfullar ráðgátur og allt þar á milli. Og hlustaðu nú! Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir.