Cecilia Lindqvist 林西莉

Árið er 1961. Ung sænsk kona stígur um borð í full pakkaðan strætisvagn í miðborg Peking. Allir eru klæddir bláum, víðum, fóðruðum jökkum og buxum í stíl. Hún er eini útlendingurinn í vagninum, þar sem fólk þarf að troðast til að stíga af og um borð - og henni er slétt ekki sama. Í fanginu heldur hún á þúsund ára gömlu strengjahljóðfæri, guqin, frá tímum Song-keisaraveldisins. Þetta sjö strengja hljóðfæri er um 120 cm á lengd, aðeins lengra en rafmagnsgítar, og hún er með það vafið inn í fóðraðan silkipoka. Unga konan hét Cecilia Lindqvist og varð síðar þekkt sem rithöfundur og einn fremsti Kínafræðingur Svía. Í þættinum er fjallað um námsdvöl hennar í hinu rauða Kína Maós og kínverska hljóðfærið guqin sem hún heillaðist af.

Om Podcasten

Í aust­­­­­ur­­­­­vegi er hlað­varps­þáttur sem fjallar um Kína og menn­ingu lands­ins. Í þátt­unum eru helstu sér­­­­­fræð­ingar lands­ins þegar það kemur að mál­efnum Kína og Íslands fengnir til við­tals. Einnig birt­­­­­ast pistlar um sagn­fræði, menn­ingu Kína og hina ýmsu áhuga­verðu ein­stak­l­inga sem koma það­­­­­an. Umsjón með hlað­varp­inu hafa Magnús Björns­­­­­son, Þorgerður Anna Björnsdóttir og Dan­íel Berg­­­­­mann.