19. Febrúar - Föstudagur

Föstudagsfiðringurinn sveif yfir vötnum í þætti morgunsins.  Lagakeppnin var á sínum stað, Stjörnu-Sævar kom í heimsókn og útskýrði allt um lendinguna á Mars, Kristín Þórsdóttir, nýútskrifaður kynlífsmarkþjálfi var í heimsókn og Sveinn Waage skólastjóri Bjórskólans gerði grín að sjálfum sér í vikulokin.  Elín Hrund Garðarsdóttir sendi eiginmanninn Ásgeir með kökur sem hún bakaði úr Milka-Oreo súkkulaði og þríeykið fór nánast að tala dönsku af gleði yfir bragðinu og Jón Axel sem vill verða áhrifavaldur birti myndir af kökunum á Instagram síðu sinni, en hann bætti við um 100 fylgjendum í þætti morgunsins.  Leikurinn 9kl9 sló í gegn.  Heyrn er sögu ríkari.  :)  Góða skemmtun. 

Om Podcasten

Ísland Vaknar er á dagskrá K100 á hverjum virkum degi kl. 06-10. Í þessu hlaðvarpi er að finna alla þættina í heild sinni án auglýsinga og tónlistar. Stjórnendur þáttarins eru: Ásgeir Páll Ágústsson, Kristín Sif Björgvinsdóttir og Jón Axel Ólafsson. Dagskrárstjóri Sigurður Þorri Gunnarsson