KA Podcastið - Sævar um uppbyggingu KA svæðisins
Sævar Pétursson framkvæmdarstjóri KA ræðir meðal annars nýja skýrslu um uppbyggingu íþróttamannvirkja á Akureyri en Sævar segir til að mynda að hagkvæmast væri að byggja upp aðstöðu KA í einu. Þá ræðir hann einnig stöðuna á knattspyrnuliði KA en liðið hefur leik á Bose mótinu á laugardaginn þegar strákarnir sækja Breiðablik heim. Einnig fer hann yfir nokkra möguleika er koma að því að lengja tímabilið í fótboltanum sem hefur verið þó nokkuð í umræðunni að undanförnu. Við hvetjum ykkur eindregið til að hlusta á þetta áhugaverða spjall sem skiptir okkur að sjálfsögðu miklu máli.