Aron Can

Þessi þáttur er í boði Yuzu. Aron Can „breytti leiknum, leikurinn hann breytir þeim“ með útgáfu Þekkir Stráginn árið 2016. Síðan þá hefur boltinn rúllað og Can skilað sínu og séð um sína. Hér er farið yfir hvernig hann byrjaði að rappa og svo syngja, hvað hann hlustaði á, tenginguna við Tyrkland og framtíðina í útlöndum.

Om Podcasten

Rapparar ræða rapptónlist - erlenda og innlenda - sína eigin og annarra. Hver og einn fær tækifæri til þess að spila eitt lag. Hið fullkomna rapplag; kraftbirtingarhljóm guðdómsins. Nýr þáttur annan hvern mánudag allt 2020. Spurningar/ábendingar/uppástungur sendast á þáttarstjórnandann Bergþór Másson (@bergthormasson) á Facebook/Instagram/Twitter