Birnir

Þessi þáttur er í boði Yuzu. Rapparinn Birnir fer yfir gamla og góða tíma í Kópavoginum og rifjar upp rappminningar í leiðinni. Hann talar um hvernig hann byrjaði að hlusta á rapp, hvernig hann byrjaði að búa til rapp, hvenær hann varð góður, hvernig hann varð betri og hvað það er sem að mögulega gerir hann góðan. Einnig talar Birnir um áfengis- og vímuefnameðferðirnar í Svíþjóð og mikilvægi edrúmennskunnar. Rapparar sem er m.a talað um eru: Gísli Pálmi, UGK, Kendrick Lamar, Drake, Wiz Khalifa, A$AP Rocky, Yung Lean og ScHoolboy Q

Om Podcasten

Rapparar ræða rapptónlist - erlenda og innlenda - sína eigin og annarra. Hver og einn fær tækifæri til þess að spila eitt lag. Hið fullkomna rapplag; kraftbirtingarhljóm guðdómsins. Nýr þáttur annan hvern mánudag allt 2020. Spurningar/ábendingar/uppástungur sendast á þáttarstjórnandann Bergþór Másson (@bergthormasson) á Facebook/Instagram/Twitter