Krabba Mane

Þessi þáttur er í boði Yuzu. Krabba Mane talar um hvernig hann byrjaði að gera beats og svo rappa, hvernig hann uppgötvaði rapp í gegnum CoD myndbönd, tjáir ást sína á meisturunum miklu Lil Uzi Vert, Playboi Carti og Madlib, hlutverk Bangerboy í rappferli sínum, íslenskt rapp í aldanna rás, Prikið og allskonar annað.

Om Podcasten

Rapparar ræða rapptónlist - erlenda og innlenda - sína eigin og annarra. Hver og einn fær tækifæri til þess að spila eitt lag. Hið fullkomna rapplag; kraftbirtingarhljóm guðdómsins. Nýr þáttur annan hvern mánudag allt 2020. Spurningar/ábendingar/uppástungur sendast á þáttarstjórnandann Bergþór Másson (@bergthormasson) á Facebook/Instagram/Twitter