Covid-19, dularfullt járnregn og Ævintýri Munda lunda

Í þættinum í kvöld förum við yfir helstu Krakkafréttir og fáum að heyra bókaormaspjall um nýja íslenska barnabók. Í kvöld tekur Sigyn Blöndal á móti rithöfundinum Ásrúnu Magnúsdóttur og Ísabel Dís Sheehan, bókaormi. Bók kvöldsins er Ævintýri Munda lunda. Bókaormur dagsins: Ísabel Dís Sheehan Umsjón: Jóhannes Ólafsson

Om Podcasten

Í Krakkavikunni er skyggnst inn í heim barnamenningar. Við fjöllum um skemmtilega viðburði og það sem er framundan hjá KrakkaRÚV og UngRÚV. Við fjöllum líka um það sem bar á góma í Krakkafréttum vikunnar, fræðumst um tækni og töfra og allt þar á milli. Umsjón: Jóhannes Ólafsson og Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir