Hjólaöryggi, glóandi Júpíter og Krakkakiljan

Í Krakkavikunni í kvöld verður farið yfir helstu Krakkafréttir. Þar verður meðal annars rætt við fótboltakrakka í Grindavík sem fengu að snúa aftur á æfingu, fjallað verður um glóandi myndir af Júpíter og uppáhaldsbók í Krakkakiljunni. Í kvöld segir Móey bókaormur frá bókinni Koparborgin. Gestir: Móey Kjartansdóttir, bókaormur Atli Dagur og Dagmar Edda, barnaþingsmenn Sesselja Traustadóttir hjá Hjólafærni á Íslandi Mikael Máni og Marinó Freyr, UMFG Anna Ýr og Natalía Nótt, UMFG Jón Arnór Pétursson, leikari Vala Frostadóttir, leikkona Umsjón: Jóhannes Ólafsson

Om Podcasten

Í Krakkavikunni er skyggnst inn í heim barnamenningar. Við fjöllum um skemmtilega viðburði og það sem er framundan hjá KrakkaRÚV og UngRÚV. Við fjöllum líka um það sem bar á góma í Krakkafréttum vikunnar, fræðumst um tækni og töfra og allt þar á milli. Umsjón: Jóhannes Ólafsson og Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir