Krakkafréttir og Langelstur að eilífu

Í Krakkavikunni í kvöld verður farið yfir helstu Krakkafréttir vikunnar og við heyrum fyrsta bókaormaspjall Krakka-Kiljunnar. Þar verður fjallað um bókina Langelstur að eilífu eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur sem hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin í síðustu viku. Bókaormur dagsins: Maríam Jökla, 8 ára Umsjón: Jóhannes Ólafsson

Om Podcasten

Í Krakkavikunni er skyggnst inn í heim barnamenningar. Við fjöllum um skemmtilega viðburði og það sem er framundan hjá KrakkaRÚV og UngRÚV. Við fjöllum líka um það sem bar á góma í Krakkafréttum vikunnar, fræðumst um tækni og töfra og allt þar á milli. Umsjón: Jóhannes Ólafsson og Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir