Krakkafréttir og Randalín, Mundi og leyndarmálið

Í Krakkavikunni í kvöld förum við yfir helstu Krakkafréttir og við fáum bókaormaspjall Krakkakiljunnar. Bók dagsins er Randalín, Mundi og leyndarmálið eftir Þórdísi Gísladóttur. Bókaormur dagsins: Dýrleif Hrafnsdóttir Thoroddsen. Umsjón: Jóhannes Ólafsson

Om Podcasten

Í Krakkavikunni er skyggnst inn í heim barnamenningar. Við fjöllum um skemmtilega viðburði og það sem er framundan hjá KrakkaRÚV og UngRÚV. Við fjöllum líka um það sem bar á góma í Krakkafréttum vikunnar, fræðumst um tækni og töfra og allt þar á milli. Umsjón: Jóhannes Ólafsson og Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir