Dagáll læknanemans // Lungnakrabbamein

Í þessum þætti munu Hrönn Harðardóttir lungnalæknir og Örvar Gunnarsson krabbameinslæknir fræða okkur um lungnakrabbamein. Lungnakrabbamein er með algengustu krabbameinum á Íslandi og það krabbamein sem veldur flestum dauðsföllum. Hrönn og Örvar fara yfir mismunandi gerðir lungnakrabbameins, helstu áhættuþætti, greiningaraðferðir, meðferðarmöguleika og þær hröðu framfarir sem hafa orðið á síðustu árum. Leggið við hlustir! Dagáll læknanemans er hlaðvarp fyrir læknanema og annað áhugasamt fólk um hvaðeina sem viðkemur klínik og læknisfræði. Stjórnendur eru Sólveig Bjarnadóttir og Teitur Ari Theodórsson.

Om Podcasten

Viðtöl um ýmis málefni sem tengjast heilbrigðismálum, starfsemi og mannauði Landspítala