Ný hringrásarlög: Tilgangur og breytingar á flokkun - Umhverfisstofnun

Veist þú hversu mikill heimilisúrgangur kemur frá einstaklingum og fyrirtækjum á Íslandi? En hvernig við stöndum okkur í flokkun miðað við þau lönd sem við berum okkur saman við? Hvernig mun svo flokkun breytast á næstu misserum?  Rakel Sigurveig Kristjánsdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, fór yfir þessi mál og fleiri með okkur í þætti dagsins sem fjallar um ný hringrásarlög sem taka gildi 1. janúar 2023. Við hvetjum hlustendur til að kynna sér Í átt að hringrásarhagkerfi: Stefna umhverfis- og auðlindaráðherra í úrgangsmálum.

Om Podcasten

Hér fjöllum við um grænar umbyltingar og breytta stjórnunarhætti sem eru að eiga sér stað í íslensku atvinnulífi og allt í kringum okkur. Við segjum meðal annars frá stjórnendum sem eru að ryðja brautina og leiða fyrirtæki í áttina að sjálfbærara og vistvænna samfélagi.