Karl Örvarsson

Við höfðum um það mikið að spjalla við Kalli að þessi tíundi þáttur er rúmlega tvöfaldur að lengd sökum þessa en stútfullur af skemmtun. Kalli hefur gert óskaplega mikið á sínum langa ferli sem hófst fyrir alvöru þegar þeir félagar í Stuðkompaníinu sigraðu Músiktilraunir árið 1987. Áður en Stuðkompaníið lagði landið undir sig framdi Kalli nokkur önnur verkefni eins og Helfró, Zýkkklana og Bandalagið, en eftir Stuðkompaní var það auðvitað Eldfuglinn, Hunang og Trúboðarnir. Kalli var einnig mjög virkur í hinum og þessum söngleikjum ásamt tónleika og –söngsýningum á árum áður. Þetta allt ásamt eftirhermunni, bransasögum, öllum systkinunum og pabba hans, útvarpsmanninum Kalla, afahutverkinu sem er nýtt fyrir honum, jólalaginu fræga og STEF gjöldunum, dassi af Eurovision og Landslagi, teiknimyndunum og nasaþefi hans af kvikmyndabransanum, veiðinni, Grænlandsförinni, David Bowie og öllum þessum 1700 vindstigum ásamt fleiru til.

Bónus-track í lokin af því að “okkur langar ekki til að fara sofa” – Upplestur steiktasta blaðaviðtals sögunnar sem tekið var við Stuðkompaníið um Verslunarmannahelgina árið 1986 af Sigurði Ingólfssyni fyrir Dagblaðið Dag.



See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.

Om Podcasten

Leikfangavélin er hlaðvarp sem hóf göngu sína haustið 2019 og er í umsjón Atla Hergeirssonar. Tónlist, tónlistarfólk, hljómsveitir, umfjallanir og viðtöl, íslenskt og erlent. Fróðleikur, skemmtun og afþreying. Bara að það sé tónlist (með örfáum undantekningum þó). Finnið Leikfangavélina einnig á Facebook og smellið endilega í eins og eitt "like". Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.