Framtíðin og fjármál - Bergur Ebbi

Bergur Ebbi er rithöfundur og fyrirlesari. Hann lærði lögfræði og vann sem slíkur í nokkur ár í banka en í kjölfarið á því að hann fór að byrja í uppistandi færði hann sig hægt og rólega í núverandi starfsvettvang. Hann hefur undanfarin ár pælt mikið í framtíðinni og skrifað bækurnar Stofuhita og Skjáskot sem fjalla um tíðarandann, tæknina og þær miklu breytingar sem þær hafa á hegðun okkar og samskipti. Við munum því fjalla hér um hvernig tæknin mun hafa áhrif á líf okkar og þá um leið á fjá...

Om Podcasten

Að gefa sér tíma í að læra grundvallaratriði um fjármál getur verið ein besta fjárfesting á tíma sem getur skilað sér margfalt til baka. Af hverju tekst sumu fólki alltaf að finna peninga meðan sumir týna þeim oftast hratt? Í þessum hlaðvarpsþáttum er talað við fólk sem náð hefur árangri í fjármálum og reynt verður að átta sig á því hvernig við öðlumst fjárhagslegt sjálfstæði og finnum peningana. Nýr þáttur hvern þriðjudag. Þættirnir eru framleiddir af umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu. Umsjón hefur Gunnar Dofri Ólafsson.