Fyrirtækið þú, skattar, rekstur og stofnun fyrirtækja - Árni Þór Hlynsson

Árni Þór Hlynsson er framkvæmdastjóri Skatts og bókhalds sem sér um bókhald og reikningsskil fyrirtækja. Hann hefur unnið við fyrirtækjaráðgjöf varðandi rekstur, bókhald og skattamál í áratugi. Hann ræðir í þessu viðtali allt það sem viðkemur rekstri einstaklinga og fyrirtækja. Við ræðum í þessu viðtali meðal annars. Hvort Íslendingar séu skattafælnir? Hvað þarf maður að gera ef maður vill fara að vinna í bókhaldi eða endurskoðun? Hvenær þarf maður að fara að ...

Om Podcasten

Að gefa sér tíma í að læra grundvallaratriði um fjármál getur verið ein besta fjárfesting á tíma sem getur skilað sér margfalt til baka. Af hverju tekst sumu fólki alltaf að finna peninga meðan sumir týna þeim oftast hratt? Í þessum hlaðvarpsþáttum er talað við fólk sem náð hefur árangri í fjármálum og reynt verður að átta sig á því hvernig við öðlumst fjárhagslegt sjálfstæði og finnum peningana. Nýr þáttur hvern þriðjudag. Þættirnir eru framleiddir af umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu. Umsjón hefur Gunnar Dofri Ólafsson.