Gerðu fólk ástfangið af þér - Þórarinn Ævarsson

Þórarinn Ævarsson er bakari sem uppgötvaði þegar hann var farinn að vinna hjá Dominos að hann hafði nef fyrir viðskiptum. Á þeim tíma tileinkaði Þórarinn sér lífsspeki sína sem er að selja mikið með lágri framlegð. Af þeim sökum hefur Þórarinn aldrei viljað tala um markhópa heldur vill hann eiga viðskipti við alla. Frá Dominos lá leið Þórarins til IKEA þar sem hann var í 15 ár. Sömu viðskiptalögmál áttu við þar og hjá Dominos að selja mörgum með lágri framlegð. Þórarinn hætti hjá ...

Om Podcasten

Að gefa sér tíma í að læra grundvallaratriði um fjármál getur verið ein besta fjárfesting á tíma sem getur skilað sér margfalt til baka. Af hverju tekst sumu fólki alltaf að finna peninga meðan sumir týna þeim oftast hratt? Í þessum hlaðvarpsþáttum er talað við fólk sem náð hefur árangri í fjármálum og reynt verður að átta sig á því hvernig við öðlumst fjárhagslegt sjálfstæði og finnum peningana. Nýr þáttur hvern þriðjudag. Þættirnir eru framleiddir af umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu. Umsjón hefur Gunnar Dofri Ólafsson.