Hlutabréf á heimsmarkaði

Svandís R. Ríkharðsdóttir og Sigurður B. Stefánsson ræða hér nýútkomna bók sína Hlutabréf á heimsmarkaði - eignastýring í 300. Bókin byggir á langri reynslu og þekkingarleit höfunda sem hafa sérhæft sig í eignastýringu á hlutbréfum. Hlutabréf eru besta leiðin til að byggja upp eignir. Í Hlutabréfum á heimsmarkaði - eignastýring í 300 ár er leitast við að auka skilning og gefa betri yfirsýn um alþjóðlegan fjármálamarkað.Með betri þekkingu verður fjárfesting markvissari o...

Om Podcasten

Að gefa sér tíma í að læra grundvallaratriði um fjármál getur verið ein besta fjárfesting á tíma sem getur skilað sér margfalt til baka. Af hverju tekst sumu fólki alltaf að finna peninga meðan sumir týna þeim oftast hratt? Í þessum hlaðvarpsþáttum er talað við fólk sem náð hefur árangri í fjármálum og reynt verður að átta sig á því hvernig við öðlumst fjárhagslegt sjálfstæði og finnum peningana. Nýr þáttur hvern þriðjudag. Þættirnir eru framleiddir af umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu. Umsjón hefur Gunnar Dofri Ólafsson.