Staða og horfur á fasteignamarkaði, að leigja eða kaupa? - Ari Skúlason

Ari Skúlason hagfræðingur hjá Landsbankanum hefur skoðað íslenskan fasteignamarkað undafarin ár. Hann ræðir í þessu áhugaverða viðtali stöðu fasteignamarkaðar. Borgar sig frekar að leigja en að kaupa? Hvernig Covid hefur haft áhrif á fasteignamarkaðinn og starfsumhverfi.Hvernig vaxtalækkanir Seðlabankans hafa gjörbreytt fasteignamarkaði. Þetta og margt fleira er rætt í þaula í þessu áhugaverða viðtali. Umsjón Gunnar Dofri Ólafsson. Framleitt af umboðsmanni skuldara me...

Om Podcasten

Að gefa sér tíma í að læra grundvallaratriði um fjármál getur verið ein besta fjárfesting á tíma sem getur skilað sér margfalt til baka. Af hverju tekst sumu fólki alltaf að finna peninga meðan sumir týna þeim oftast hratt? Í þessum hlaðvarpsþáttum er talað við fólk sem náð hefur árangri í fjármálum og reynt verður að átta sig á því hvernig við öðlumst fjárhagslegt sjálfstæði og finnum peningana. Nýr þáttur hvern þriðjudag. Þættirnir eru framleiddir af umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu. Umsjón hefur Gunnar Dofri Ólafsson.