Matarkista Íslands í sókn

Tækifæri til matvælaframleiðslu allt árið um kring á Suðurlandi eru fjölmörg. Til staðar er græn orka, gott ræktarland og staðgóð þekking í þágu nýsköpunar á þessu sviði. Til þess að virkja þessi tækifæri þarf bara að kveikja hugmyndirnar! Og það er einmitt aðalhlutverk Sveins Aðalsteinssonar, framkvæmdastjóra Orkídeu, sem er samstarfsverkefni um nýsköpun á Suðurlandi á vegum Landsvirkjunar, Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Landbúnaðarháskóla Íslands og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Sveinn Aðalsteinsson er viðmælandi þáttarins.

Om Podcasten

Lífæðar landsins er hlaðvarp Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja. Fjallað verður um orku- og veitumál frá hinum ýmsu hliðum. Gert er ráð fyrir að nýr þáttur komi inn mánaðarlega eða svo.