Matarjólaspjall með Heru Björk
Þar sem föstudagsgestur Mannlega þáttarins í dag , Hera Björk Þórhallsdóttir söngkona, er annálaður áhugakokkur því var borðleggjandi að fá hana til að sitja áfram með okkur í matarspjallinu með Sigurlaugu Margréti. Hera sagði okkur frá heimsfrægri kalkúnafyllingu, sem hún nappaði frá Sigurði Flosasyni og fjölskyldu, laufabrauðsgerð og jólamatnum í hennar fjölskyldu.