Passíusálmar, páskahefðir og að njóta litlu hlutanna í lífinu

Páskahátíðin er fram undan og þátturinn tók að nokkru leyti mið af því. Það er orðin hefð hjá okkur að fjalla um passíusálma Hallgríms Péturssonar í aðdraganda páska og í hana höldum við í dag. Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur hefur umsjón með flutningi Passíusálmanna í Hallgrímskirkju í Reykjavík á föstudaginn, föstudaginn langa. Steinunn spjallaði um þetta höfuðverk skáldsins og píslargöngu krists. Og svo voru það dönsku málefnin; Borgþór Arngrímsson sagði frá því sem er efst á baugi í Danmörku þessa dagana og rabbaði líka um danskar páskahefðir. Við ræddum líka um hamingju og vellíðan - það er sígilt umhugsunarefni en okkur datt í hug að sniðugt væri að taka með okkur vangaveltur um þau mikilvægu mál inn í páskaleyfið. Við fjölluðum um listina að kunna að njóta þess smáa; að njóta “litlu hlutanna” eins og sagt er. Ingrid Kuhlman sálfræðingur hjálpaði okkur við þetta. Tónlist: Magnús og Jóhann, Magnús Þór Sigmundsson, Jóhann Helgason Tónlistarmaður - Seinna meir. Jón Þorsteinsson, Hörður Áskelsson - Ó Jesú að mér snú. 309. Jón Þorsteinsson, Hörður Áskelsson - Ver hjá mér herra dagur óðum dvín. 426. Kitty Kallen - Little things mean a lot. Ingibjörg Þorbergs - Man ég þinn koss.

Om Podcasten

Helstu mál líðandi stundar krufin til mergjar. Umsjón með Morgunvaktinni hafa Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.