Stjórnmál í Brasilíu, saga Jamæka og fjármál sveitarfélaga

Kosið verður í Brasilíu á sunnudag. Skoðanakannanir benda til að Lulu, fyrrverandi forseti, hafi betur gegn Bolsonaro, sitjandi forseta. Luciano Dutra þýðandi ræddi um kosningabaráttuna, stjórnmálin og ástand mála í Brasilíu en þar eru miklir erfiðleikar og margt fólk býr við sárafátækt. Vera Illugadóttir rakti sögu Jamæka í tilefni þess að Heimir Hallgrímsson hefur tekið við þjálfun fótboltalandsliðs þjóðarinnar. Halli var á rekstri Akureyrarbæjar á fyrri hluta ársins - en þó ekki jafnmikill og áætlað var. Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri fór yfir fjárhag bæjarins og starfsumhverfi sveitarfélaga í spjalli við Ágúst Ólafsson fréttamann. Tónlist: Jamaica - Vilhjálmur Vilhjálmsson, Not in Kansas - The National, Pressure drop - Toots and the Maytals, Me and Boby McGee - Janis Joplin. Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Om Podcasten

Helstu mál líðandi stundar krufin til mergjar. Umsjón með Morgunvaktinni hafa Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.