Vara- og tunguhaft: ,,Þetta er ekki tískubóla, þetta er vitundarvakning.“

Þórunn & Alexsandra fara aðeins yfir atburði seinustu vikna í þætti dagsins. Þær tala um sína upplifun og reynslu á að eiga börn með vara- og tunguhöft sem þurfti að klippa á, helstu einkenni þess og hvað breyttist eftir að var klippt á höftin. Nauðsynlegt er að bæta þjónustu þegar kemur að þessum þáttum hérlendis og grípa sem fyrst inn í til að koma í veg fyrir vandamál tengd brjóstagjöf, fæðuinntöku og tali barna.ÞOKAN er í boði Kiehl's, Bestseller og Nespresso. 

Om Podcasten

Bestu vinkonurnar Þórunn Ívars og Alexsandra Bernharð ræða um móðurhlutverkið og fara þær yfir allt frá getnaði til meðgöngu, fæðingar og dagsins í dag ásamt því að fá til sín skemmtilega gesti. ÞOKAN er í boði Fruitfunk, Bestseller og Nespresso.