5. Egils saga - Höggva mann og annan

Lögmaðurinn Egill sprettur fram og gefur ekkert eftir frekar en fyrri daginn. Honum verður hins vegar lítið ágengt enda aldrei sniðugt að reyna að rukka Norðmann. Þá er bókstaflega ekkert annað í stöðunni en að tryllast, fjöldamyrða og reisa eins og eina níðstöng. Skallagrímur vill silfrið en maður fær ekki allt í lífinu. En við fáum brandara Ármanns þó í þessum þætti. Fatta Tungurnar hann? Hlustið og hlýðið. Inn- og útgöngustef: Reynir Haraldsson

Om Podcasten

Íslendingasögurnar! Ormstungur er umræðuþáttur þar sem tveir kennarar, Hjalti Halldórsson og Oddur Ingi, ræða helstu Íslendingasögurnar á léttu nótunum. Tilgangur hlaðvarpsins er að styðja við lestur og upplifun á Íslendingasögunum.